Tíu þúsund fet leggja áherslu á framandi ferðir á ævintýralegar slóðir þar sem það eru alltaf tveir reynslumiklir íslenskumælandi fararstjórar með í för, þau Rún og Trausti sem eru jafnframt eigendur ferðaskrifstofunnar. Þar að auki eru stundum fjölmiðlafólkið skemmtilega, þau Illugi Jökulsson eða Vera dóttir hans með okkur í för og það eru ekkert nema forréttindi að ferðast um með þeim feðginum sem fræða okkur um hitt og þetta sem jafnvel fáir vita.
Þá erum við líka stolt af því að bjóða upp á okkar eigin golfferðir undir vörumerkinu Gæðagolf, sem er sannkallað réttnefni því við bjóðum glæsilegar golfferðir á fyrsta flokks golfsvæði í Katalóníu ásamt golfskóla í hæsta gæðaflokki.
Eigendur Tíu þúsund feta, Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson, hafa starfað í 25 ár við margs konar ferðaþjónustu um víða veröld.
Við leggjum mikla áherslu á jákvæð samskipti við heimafólk og viljum tryggja að það fái líka sem mest út úr ferðunum okkar.
Við erum fjölskyldufyrirtæki með reynslumikla fararstjóra sem hafa mikla þekkingu á öllu sem viðkemur ferðamennsku. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu.
Þegar þú bókar ferð með Tíu þúsund fetum rennur hluti af verði ferðarinnar til skógræktar á Íslandi.
Tíu þúsund fet leggja áherslu á framandi ferðir á ævintýralegar slóðir, vandaðar árshátiðar- og hópaferðir fyrir fyrirtæki og hópa af ýmsum toga, fyrsta flokks æfingaferðir fyrir íþróttafélög og glæsilegar golfferðir. Í þessu erum við best en við erum líka góð í ýmsum öðrum ferðum þannig að þú skalt endilega senda okkur línu ef þú ert í ferðahugleiðingum.
Er fyrirtækið, íþróttafélagið, gönguhópurinn, kórinn, skíðahópurinn, saumaklúbburinn eða vinahópurinn að leita sér að frábærri ferð? Við sérhæfum okkur í að bjóða hópum, litlum sem stórum, af ýmsum toga upp á vandaðar ferðir, persónulega þjónustu og flotta fararstjórn.
Tíu þúsund fet leggja áherslu á ferðaöryggi, ótrúlega upplifun, sveigjanleika í ferðatilhögun og ferðafrelsi til að kanna og njóta hverrar ferðar til hins ítrasta. Í framandi ferðum reynum við líka að hafa hópana ekki stóra til að byggja upp betri tengsl á milli farþega okkar.