Þessi dásamlega sigling er væntanleg. Ef þú hefur áhuga á ferðinni sendu okkur þá línu: [email protected]
Láttu drauminn rætast og komdu með okkur í magnaða siglingu frá Róm til Rio de Janeiro í Brasilíu. Upplifðu 8 ólíka áfangastaði í þremur heimsálfum á þessari siglingu okkar um Miðjarðarhafið og yfir Atlantshafið.
Við munum ferðast um þrjár heimsálfur á þessari dásamlegu skemmtisiglingu frá Róm til Ríó. Komdu með í sannkallaða draumaferð!
Á ferðalaginu heimsækir þú átta fjölbreytta áfangastaði í þremur heimsálfum. Vertu sannur landkönnuður og komdu með okkur í þessa frábæru skemmtisiglingu sem hefst í Róm, borginni sem er með flestu gosbrunna heims! Fyrst siglum við um Miðjarðarhafið með viðkomu í Marokkó og á Kanaríeyjum og þaðan er siglt yfir Atlantshafið yfir til Suður-Ameríku, þar sem siglt verður með strandlengju Brasilíu með viðkomu í skemmtilegum borgum landsins og endum í iðandi mannlífi hinnar stórkostlegu borgar, Rio de Janeiro.
Höfn fyrir höfn mun okkar tilkomumikla sigling kynna ólíkar hefðir, menningu og samfélög og veita ógleymanlega upplifun. Sérhannaðar skoðunarferðir í landi tryggja að enginn steinn verður látinn ósnortinn. Um borð eru fjölda sælkeraveitingastaða, ótal barir, margverðlaunaðar heilsulindir, endlausar afþreyingar og fyrirmyndar sundalaugar- og sólbaðssvæði.
Í öllum sérferðum Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðirnar, þau Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson. Þau hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld, þ.á.m. til Rómar, Marokkó, Kanaríeyja og Brasilíu.
Ef tilhneiging er til sjóveiki, er sniðugt að gera viðeigandi ráðstafanir.
Dagur 1 | Þriðjudagur | Höfn: Civitavecchia (Rome), Italy | Koma: – | Brottför: 19:00 |
Dagur 2 | Miðvikudagur | Höfn: Á siglingu | Koma: – | Brottför: – |
Dagur 3 | Fimmtudagur | Höfn: Palma de Mallorca, Spain | Koma: 09:00 | Brottför: 18:00 |
Dagur 4 | Föstudagur | Höfn: Á siglingu | Koma: – | Brottför: – |
Dagur 5 | Laugardagur | Höfn: Casablanca (Marrakech), Morocco | Koma: 07:00 | Brottför: 21:00 |
Dagur 6 | Sunnudagur | Höfn: Á siglingu | Koma: – | Brottför: – |
Dagur 7 | Mánudagur | Höfn: Santa Cruz de Tenerife, Spain | Koma: 09:00 | Brottför: 18:00 |
Dagur 8 | Þriðjudagur | Höfn: Á siglingu | Koma: – | Brottför: – |
Dagur 9 | Miðvikudagur | Höfn: Á siglingu | Koma: – | Brottför: – |
Dagur 10 | Fimmtudagur | Höfn: Á siglingu | Koma: – | Brottför: – |
Dagur 11 | Föstudagur | Höfn: Á siglingu | Koma: – | Brottför: – |
Dagur 12 | Laugardagur | Höfn:Á siglingu | Koma: – | Brottför: – |
Dagur 13 | Sunnudagur | Höfn: Á siglingu | Koma: – | Brottför: – |
Dagur 14 | Mándagur | Höfn: Salvador, Brazil | Koma: 09:00 | Brottför: 18:00 |
Dagur 15 | Þriðjudagur | Höfn: Ilheus, Brazil | Koma: 09:00 | Brottför: 18:00 |
Dagur 16 | Miðvikudagur | Höfn: Á siglingu | Koma: – | Brottför: – |
Dagur 17 | Fimmtudagur | Höfn: Rio de Janeiro, Brazil | Koma: 07:00 | Brottför: – |
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Tíu þúsund fet áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.
Flug:
Farangur:
Hótel:
Akstur
Sigling
Fæði:
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ