Stórkostleg skíðaferð á eitt fallegasta skíðasvæði ítölsku Alpanna, Madonna di Campiglio. Notaleg stemning ríkir í bænum þar sem finna má úrval fallegra verslana og frábæra veitingastaði. Skíðasvæðið er fyrsta flokks með 156 kílómetrum af glæsilegum brekkum við allra hæfi.
Stórfengleg skíðaferð í ítölsku Ölpunum, þar sem dvalið er í heillandi fjallabæ, Madonna di Campiglio. Flogið er til Verona og þaðan keyrt í dýrðina, þar sem skíðað verður alla daga við frábærar aðstæður.
Svæðið býður upp á ótrúlega fjölbreytt skíðasvæði, þar sem allir geta fundið brekkur við sitt hæfi. Góðar tengingar eru á milli allra svæðanna og fjölda góðra veitingastaða er að finna víðsvegar í snæviþöktum hlíðunum, þar sem notalegt er að njóta matar og drykkjar með útsýni sem svíkur engan.
Madonna di Campiglio er einkum frægt fyrir sitt dásamlega skíðasvæði í ítölsku Ölpunum en það er þó einnig þekkt fyrir skemmtilegt mannlíf í samnefndum bæ, þar sem finna má fjölda góðra veitingastaða, kaffihúsa og fallegra verslana.
Svæðið á sér í raun langa sögu sem vinsæll áfangastaður fyrir þá sem vilja stunda útivist og vetraríþróttir af ýmsu tagi. En staðurinn byrjaði að þróast sem ferðamannastaður seint á 19. öld og hefur síðan þá þróast í að vera eitt vinsælasta skíðasvæði ítölsku Alpanna, þar sem fjöldi alþjóðlegra skíðaviðburða hafa verið haldnir ásamt því að vera vinsæll áfangastaður fyrir stjörnur og áhugasamt vetraríþróttafólk.
Menningin hefur þróast út frá staðsetningu svæðisins, í Alpafjöllum Trentiono-héraðsins og þeir ferðamenn sem þangað koma finna fyrir blönduðum ítölskum og týrolskum hefðum í mat, drykk og arkitektúr. Þar ríkir einstök gestrisni og vinalegt viðmót, sem skapar einstaklega notalega og góða stemningu í Madonna di Campiglio.
Eins og allir þekkja, sem til Ítalíu hafa komið, þá gerist maturinn ekki betri á heimsvísu! Hvort sem þú ert fyrir pizzur og pasta, safaríkar steikur, fersk salöt, skinkur eða osta, þá verður þú aldrei fyrir vonbrigðum og bragðlaukarnir fara alltaf sáttir frá borði.
Trentino héraðið er líka þekkt fyrir sín svalandi hvítvín, búin til úr vínþrúgum sem hafa verið ræktaðar í hreinu fjallalofti, þetta eru vín eins og Pinot Grigio, Chardonnay og Muller-Thurgau.
Madonna di Campiglio er einfaldlega frábær skíðaáfangastaður!
Laugardagur 31. janúar
Sunnudagur 1. febrúar
Mánudagur 2. febrúar
Þriðjudagur 3. febrúar
Miðvikudagur 4. febrúar
Fimmtudagur 5. febrúar
Föstudagur 6. febrúar
Laugadagur 7. febrúar
Vinsamlega athugið
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Tíu þúsund fet áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrrúmi.
Í ferðinni er mikilvægt að vera heilsuhraustur og vera reiðubúinn til að takast á við líkamlega hreyfingu á skíðum. Hver og einn getur valið sér brekkur og skíðasvæði við sitt hæfi.
Í skíðaþorpinu gistum við á 4* hótelinu Hotel Cristiania (eða sambærilegu) sem er vel staðsett skammt frá miðbænum. Aðstaðan á hótelinu er öll hin snyrtilegasta og þar má finna heilsulind sem gott er að njóta að loknum fallegum skíðadegi.
Herbergin eru öll vel útbúin og hugguleg þar sem farþegar Tíu þúsund fet geta látið fara vel um sig. Morgunmaturinn á hótelinu er fjölbreyttur og vel útbúinn.
Hótelið er staðsett í stuttri göngufjarlægð frá skíðalyftu og þar er einnig hægt að nálgast lyftukortin. Stutt frá má finna bæði leigu fyrir allan skíðabúnað og skíðaskóla.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða.
Í þessari skíðaferð Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með, þau Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson. Þau hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld. Rún og Trausti þekkja skíðasvæðið mjög vel og hafa skíðað þar til margra ára. Þau munu sjá til þess að farþegar upplifi og njóti sín til fulls í þessari draumaferð í ítölsku Ölpunum, þar sem skemmtileg upplifun og útivist verður sett í forgang.
Flug:
Farangur:
Akstur:
Gististaðir:
Fæði:
Skoðunarferðir
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ
Athugið að listinn er ekki tæmandi og aðeins til viðmiðunar.