Hefur hópurinn þinn áhuga á þessari ferð? Sendu okkur þá línu á [email protected]
Tíu þúsund fet bjóða nú upp á flotta æfingaferð í knattspyrnu á sólríkri suðurströnd Tenerife. Eyjan vinsæla býður frábærar aðstæður fyrir fótboltamanninn; fallegar strendur, góðan gististað og frábærar æfingaaðstæður.
Æft er við toppaðstæður á Tenerife Top Training æfingasvæðinu þar sem allt er til alls, m.a. mjög góðir grasvellir og líkamsrækt.
Tíu þúsund fet kynna æfingaferð til Tenerife fyrir karla- og kvennalið í knattspyrnu. Ferðin hentar vel til þess að æfa við toppaðstæður og hrista hópinn vel saman. Miðað er við beint flug frá Keflavíkurflugvelli.
Dvalið er í huggulegum strandbæ á suðurhluta eyjarinnar fögru þar sem finna má allt til alls fyrir sólþyrsta ferðalanga. Æfingaaðstaðan er mjög góð, jafnt á góðum knattspyrnugrasvelli sem og í flottri líkamsræktarstöð. Á svæðinu er einnig hægt að fá afnot af fundarherbergjum ásamt heitum og köldum pottum.
Hér er frábært tækifæri til að æfa við bestu aðstæður og njóta óþrjótandi afþreyingarmöguleika á sólríkum slóðum. Þú finnur ekki betri leið til að hrista hópinn saman og æfa liðið fyrir komandi keppnir á Íslandi.
Tenerife er stærsta og fjölsóttasta eyjan af þeim átta eyjum sem tilheyra Kanaríeyjunum. Hún er staðsett mitt á milli eyjanna Gran Canaria, La Gomera og La Palma. Tenerife er eldfjallaeyja sem talin er að hafi myndast fyrir 8 milljónum ára. Hún er í u.þ.b. 300 km fjarlægð frá meginlandi Afríku og í u.þ.b. 1300 km frá meginlandi Spánar. Eyjan er 2.034 ferkílómetrar að flatarmáli og er eins og þríhyrningur í laginu og fer hún hækkandi eftir því sem nær dregur miðju og nær hámarki með Pico del Teide sem er hæsta fjall Spánar í 3.718 m hæð yfir sjávarmáli. Santa Cruz er höfuðborgin þar sem búa um 250.000 íbúar en á eyjunni búa tæplega milljón manns.
Meðalhiti á Tenerife er í kringum 22-25 °C en athugið að hitastigið getur verið lægra upp til fjalla.
Á Tenerife er veðrið einfaldlega gott allan ársins hring. Meðalhiti er um 20-22 gráður, á svalari dögum fer hitinn vart undir 15 gráður en sjaldan yfir 30 gráður í sumarhitum. Árstíðirnar koma og fara án þess að nokkur maður taki eftir því. Á suðurhluta Tenerife er eitthvert stöðugasta og besta loftslag á jörðinni – sól og blíða allan ársins hring.
Eyjan býður upp á fjölbreytta afþreyingu, þar sem m.a. er að finna stærstu go-kart braut í Evrópu ásamt einum allra glæsilegasta vatnsrennibrautagarði heims, Siam Park. Við ströndina er hægt að finna ýmsa afþreyingu; s.s. sjóskíði, bananabáta, siglingar og köfun.
Í gamla fiskimannabænum Los Cristianos ríkir skemmtileg stemning frá morgni til kvölds, en þar er að finna margar göngugötur með fullt af litlum verslunum, veitingastöðum og fleiru, sem skemmtilegt er að skoða. Svo tekur Playa de las Américas strandbærinn við með stór hótel, margar verslanir auk verslunargötu. Hér eru veitingastaðir sem bjóða fjölbreyttan mat, t.d. kínverskan, indverskan og að sjálfsögðu spænskan. Þá er hér að finna fjölskrúðugt næturlíf með mörgum börum og dansstöðum.
Playa de las Américas, strandsvæði sem oft er kallað Las Américas eða Ameríska ströndin, er ein af vinsælustu áfangastöðum Tenerife, staðsett á suðurhluta eyjarinnar. Svæðið er þekkt fyrir iðandi mannlíf, skemmtilegar verslanir, afslappað andrúmsloft, fallegar strendur, fjölbreytta afþreyingu og frábæra veitingastaði. Las Américas er frábær staður fyrir þá sem leita að skemmtun, afslöppun og fjölbreyttum afþreyingarmöguleikum á Tenerife!
Fimmtudagurinn
Ferðadagur (Flug kl. 09:10)
Föstudagurinn
Æfingar & þjálfun.
Laugardagurinn
Æfingar & þjálfun.
Sunnudagurinn
Frjáls dagur
Mánudagurinn
Æfingar & þjálfun.
Þriðjudagurinn
Æfingar & þjálfun.
Miðvikudagurinn
Æfingar & þjálfun.
Fimmtudagurinn
Ferðadagur (Flug kl. 15:50)
Langar þig til að hrista hópinn saman og æfa við toppaðstæður á eyjunni fögru? Vilt þú dvelja á góðu hóteli þar sem stutt er í alla þjónustu? Ef svarið er JÁ, þá er þetta rétta ferðin fyrir þig.
Íþróttasvæðið býður uppá flottar æfingaaðstæður fyrir knattspyrnu þar sem lið víða að hafa vanið komið sínar til æfinga. Æfingasvæðið býður uppá góða grasvelli og öllu sem tilheyrir æfingum, bolta, keilur, vatnsbrúsa, kælikassa, boltapumpu o.s.frv.
,,Við erum búin að vera hér á Tenerife síðustu vikuna með Tíu þúsund fetum og allt upp á tíu. Æfingaaðstaða frábær, öll áætlun gekk upp, rútur voru tímanlegar, hótelaðstaðan góð og maturinn flottur. Í raun allt upp á tíu!“
Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni
,,Við stelpurnar erum búnar að vera hér á Gara Suites hótelinu í viku með Tíu þúsund fetum og það er búið að vera frábær upplifun, geggjað veður, frábærir vellir, búið að ganga mjög vel og hótelið gott. Allt upp á tíu!
Anna María Baldursdóttir, fyrirliði meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni
,,We just finished a fantastic training trip in Tenerife with Rún and Trausti at Tíu þúsund fet. I cant recommend it higly enough. The training facilities are fantastic and the weather beautiful. Everything from top to bottom has been absolutely first class. Not only do we want to say thank you very much and recommend it but we hope to be meeting you guys again. Thank you so much for your hospitality, takk fyrir og adios!“
John Andrews, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi
,,Þetta er búin að vera geggjuð ferð. Umgjörðin öll frábær og fótboltavellirnir frábærir. Geggjuð þjónusta hjá Tíu þúsund fetum, þannig við munum klárlega nýta okkur ykkur aftur. Bara allt uppá tíu. Við mælum með!
Selma Dögg Björgvinsdóttir, fyrirliði meistaraflokks kvenna hjá Víkingi
Gist er á 4* hótelinu Gara Suites Golf & Spa með fullu fæði.
Hótelið er huggulegt og vel staðsett á Amerísku ströndinni, Playa de las Americas. Æfingaaðstaðan er í 10 mín. akstursfjarlægð frá hótelinu en rútur sækja fótbolta lið og keyra á svæðið og sækja að loknum æfingum.
Herbergin eru björt og snyrtileg. Sameignarsvæði hótelsins er fallegt og innréttað í notalegum stíl. Veitingastaður og hótelbar eru með snyrtilegasta móti. Móttakan er opin allan sólarhringinn.
Á hótelinu er huggulegt sundlaugarsvæði þar sem gestir fá úrvals aðstöðu til þæginda, hvíldar og sólbaða.
Hótelið býður upp á gjaldfrjálsa Wi-Fi tengingu en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Á hótelinu er að finna þvottaaðstöðu, þar sem leikmenn geta bæði þvegið og þurrkað íþróttafatnað gegn vægu gjaldi.
Við hótelið er að finna flottan 18 holu golfvöll og því geta leikmenn auðveldlega skroppið í golf að æfingum loknum.
Rétt hjá hótelinu er einnig að finna stóran verslunarkjarna, SIAM MALL og hinn vinsæla vatnsleikjagarð, SIAM PARK.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða. Athugið einnig að gististaðir geta breyst en þá er ávallt boðið upp á sambærilega gististaði eða betri.
Flug:
Farangur:
Hótel:
Fæði:
Æfingar
Akstur
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ