Tíu þúsund fet bjóða nú upp á glæsilega hringferð um Suður-Ítalíu, þar sem ferðalangar fá vandaða leiðsögn um sögu, menningu og náttúru landsins frá tveimur þaulreyndum íslenskum fararstjórum. Þrjár sögufrægustu borgir heims; Róm, Napolí og Pompeii, Páfagarður ásamt heillandi miðaldarbæjum á Amalfí-skaganum ásamt Sorrento og hinni dásemlegu eyju Capri. Þetta er einfaldlega dásamleg ferð sem þú skalt ekki missa af!
Tíu þúsund fet kynna meiriháttar hringferð til Suður-Ítalíu, þar sem hver sögu- og náttúruperlan rekur hver aðra. Dvalið er á huggulegum hótelum, nálægt miðbæjarkjörnum allra áfangastaðanna, þar sem vel fer um farþega.
Þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar halda utan um hópinn og fræða um land, menningu, siði og þjóð. Vönduð dagskrá í boði og mikið innifalið.
Hér er frábært tækifæri til að upplifa stórbrotna menningu og njóta óþrjótandi afþreyingarmöguleika í sögufrægustu borgum heims.
Hér er á ferðinni fróðleg og skemmtileg menningarferð, þar sem einstök náttúra, saga, mannlíf og dásamlegur matur og góðar veigar skipa stórt hlutverk.
Ítalía
Ítalía liggur við Miðjarðarhafið á Appenína-skaganum í Suður-Evrópu og hefur lögun landsins verið líkt við háhæla stígvél. Landið er 301.340 ferkílómetrar að stærð og á landamæri að Frakklandi, Sviss, Austurríki og Slóveníu. Þá umlykur Ítalía tvö sjálfstæð ríki, San Marínó og Vatíkanið.
Fjöldi íbúa er tæplega 59 milljónir og er landið það þriðja fjölmennasta innan aðildarríkja Evrópusambandsins. Flestir íbúanna búa í höfuðborginni Róm eða tæplega 3 milljónir. Á Ítalíu er opinbera tungumálið ítalska en mállýskurnar eru margar og ólíkar eins og á Sikiley, í Napolí og í Feneyjum. Margir leita til Ítalíu til að læra þetta skemmtilega tungumál.
Veðrið er fjölbreytt og skiptist eftir landshlutum, en Miðjarðarhafsloftslag er þó ríkjandi með heitum og þurrum sumrum og mildum vetrum. Í norðrinu, sérstaklega í Alpafjöllunum einkennist veðrið hins vegar af köldum vetrum og snjókomu og heitum sumrum.
Ítalíu á sér gríðarlega langa og ríka sögu, sem nær mörg þúsund ár aftur í tímann, þar sem ýmsar fornþjóðir lögðu grunn að ýmsum menningarlegum þáttum landsins en samspil þeirra við sögulega atburði hafa mótað þjóðarvitund þeirra í gegnum tíðina.
Ítalir búa yfir ríkri menningarhefð og listum, þar sem þeir hafa lagt mikið að mörkum til bókmennta, tónlistar og vísinda svo fátt eitt sé nefnt en Dante, Verdi, Vivaldi og Galileo Galilei voru allir frá Ítalíu. Þá er landið þekkt fyrir einstakan arkitektúr, myndlist og skúlptúra, eins og St. Péturskirkjuna í Vatíkaninu, Colosseum í Róm og listamennirnir Leonardo da Vinci, Michelangelo og Raphael Sanzio, Ítalía er með flest svæði í heimi á heimsminjaskrá UNESCO, þar á meðal borgir eins og Feneyjar, Flórens og fornborgina Pompei. Þá er Ítalía heimsþekkt fyrir matargerðina sína, þar sem þeir bjóða upp á heimsins bestu pastarétti, pizzur og auðvitað langbesta ísinn. Þá er að finna héruð á Ítalíu sem rækta heimsklassa ólífur og vinna þeir ýmsar olíur úr þeim. Ítalir eru einnig þekktir fyrir vínræktina, sem þeir hafa stundað í hundruð ára og toppurinn verður að teljast eftirréttarvínið þeirra, limoncello.
Landslagið á Ítalíu er afar fjölbreytt, allt frá snævi þöktum tindum Alpafjalla í norðri yfir í sólríkar strendur við Miðjarðarhafið, þar sem Amalfi-ströndin verður að teljast sú vinsælasta. Þá má finna þar gróðursælar hæðir og fjöll og grösug flatlendi, þar sem ýmis ræktun á sér stað.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM ÍTALÍU
Það er í raun ekki hægt að fanga allt sem Ítalía hefur upp á að bjóða í stuttu máli, landið er einfaldlega frábært heim að sækja og um það þarf ekki að hafa fleiri orð!
Róm
Róm sem er höfuðborg Ítalíu er staðsett á Mið-Ítalíu á vesturströndinni á bökkum Tíber-fljótsins og umlykur borgin borgríkið Vatíkanið, þar sem höfuðstöðvar kaþólsku kirkjunnar er með aðsetur páfans. Borgin er stundum kölluð ,,borgin eilífa” en til forna var hún höfuðborg heimsveldisins.
Í Róm er að finna marga áhugaverða staði ásamt skemmtilegum afþreyingarmöguleikum og dásamlegum mat.
Róm er einna þekktust fyrir hinar frægu byggingar, Colosseum, sem er stærsta hringleikahús veraldar þar sem m.a. glæsilegar bardagasýningar fóru fram og svo hin ægifagra Péturskirkja sem er stærsta kirkja Evrópu. Pantheon í Róm er síðan meðal best varðveittu bygginga heims, en arkitektúrinn þykir einstakur, sérstaklega fyrir sakir hvolfþaksins sem er það stærsta sinnar tegundar úr óstyrkri steypu.
Þá eru málverk Michaelangelo, Botticello og félaga á veggjum Sixtínsku kapellunnar í Vatíkaninu engu lík en þau teljast til frægustu listaverka sögunnar. Í Róm er síðan að finna hið forna Rómatorg eða Roman Forum, þaðan sem borgin byrjaði að vaxa en þar var miðpunktur viðskipta, menningar og stjórnsýslu Rómaveldis. Navónutorg telst síðan vera eitt fegursta torg Rómar, en áður fyrr var þar leikvangur Circus Agonalis. Þá má ekki nefna Róm án þess að minnast á Spænsku tröppurnar og Trevi-brunninn, þar sem þúsundir evra enda daglega ofan í brunninum.
Hægt er að finna söfn af ýmsu tagi í borginni, m.a. þjóðminjasafnið, sem inniheldur mikið af fornleifum og listaverkum frá Rómaveldi. Galleria Borghese listasafnið er líka skemmtilegt heim að sækja, með málverkum eftir snillinga eins og Michelangelo og Raphael. Þá er þar einnig að finna listasafn tileinkað samtímalist.
Matar- og vínmenning þeirra heimamanna einkennist af heimagerðu pasta, þar sem þekktustu pastaréttir Rómar eru Cacio e Pepe og Carbonara. Þá eru Rómarbúar snillingar í pizzugerð og er pizza al Taglio ein af þeim vinsælustu en hún minnir á heimagerðar kassalaga pizzur með þykkum botni, bragðgóðri sósu, áleggi og ljúffengum þykkum mozzarella osti. Ítalir elska líka ís en ítalska ísinn er mjög víða hægt að finna í borginni. Róm er síðan umkringd frægum vínræktarsvæðum eins og Frascati og Castelli Romani og er auðvelt að fara í vínsmökkun á velvöldum vínbúgörðum.
Róm er einfaldlega borg borganna!
Napolí
Napolí, sem er þriðja stærsta borg Ítalíu, er í Campania-héraði á Suður-Ítalíu með tæplega eina milljón íbúa. Borgin á sér langa sögu eða aftur um 2.500 ár en í samhengi við margt á Ítalíu, þá er hún ekki gömul og því var hún kölluð Nýja borgin. Borgin er full af sögu, menningu og ómótstæðilegum mat.
Hin 2.500 ára gamla saga Napolí býr yfir mörgum sögufrægum byggingum og minnisvörðum og stundum hefur borgin einfaldlega verið skilgreind sem ítalska borgin sem er með of mikla sögu til að ná yfir hana alla. Það ber því ekki að undra að miðborgin hafi verið sett á heimsminjaskrá UNESCO. Byggingastíllinn einkennist af miðaldar-, endurreisnar- og barokkstíl. Í borginni er að finna 448 sögufrægar kirkjur en á heildina eru kirkjurnar 1.000, sem gerir borgina að kaþólskustu borg heims, þegar tekið er tillit til fjölda starfsmanna sem tengjast kirkjunum. Ein þessara kirkja er Duomo di Napoli eða dómkirkjan, sem er þekkt fyrir hversu fagurlega hún er skreytt og eins fyrir arkitektúrinn.
Iðandi mannlífið, sem einkennist m.a. af lifandi tónlist, myndlistar- og götulistamönnum, á strætum þessarar sögufrægu borgar skapar skemmtilega stemningu en þar er að finna fjölda góðra kaffitería, veitingastaða og fallegra verslana og því auðvelt að gleyma sér og njóta þess sem borgin býður upp á. San Gregorio Armeno er ein af skemmtilegri götum borgarinnar, þar sem gatan er fræg fyrir handverksfólk, sem selur fallega muni sína til ferðamanna. Fyrir þá sem hafa áhuga á listum og menningu, þá er að finna í borginni listasafnið Museo di Capodimonte, sem er ríkulega skreytt verkum meistara á við Caravaggio og Titian. Í Napolí er síðan að finna eitt elsta og frægasta óperuhús í heimi, þar sem reglulega eru sýndar bæði óperur og ballett.
Rétt utan við Napolí er síðan að finna hið virka eldfjall Vesúvíus en fyrir þá kjörkuðu er hægt að fara í göngu upp á topp og njóta fagurs útsýnis yfir Napolí og Napolí-flóa. Neðan við fjallið standa rústir Pompeii-borgar, sem grófst undir ösku í eldgosinu árið 79 e.Kr. Borgin sú þykir ein merkilegasta í sögu fornleifarannsókna.
Matarmenningin í Napolí er einföld, íbúarnir elska pizzur enda var pizzan fundin upp í Napolí. Pizzan þeirra er þekkt fyrir þunna og mjúkan botn og fersk, einföld hráefni. Napolí er líka þekkt fyrir sitt sterka espresso kaffi, sem allir verða að bragða á.
Pizza, kaffi og fullt af sögu er hreinlega samsetning, sem getur ekki klikkað í Napolí!
Ómetanlegar söguslóðir Pompeii
Hin forna borg Pompeii er í nágrenni við borgina Napolí á suður Ítalíu. Talið er að um tuttugu þúsund manns hafi búið í Pompei þegar mest var og flestir stunduðu þeir viðskipti af ýmsu tagi.
Pompeii var rómverskur verslunarstaður og íbúarnir voru frægir fyrir að byggja sér glæsileg hús og vera snillingar í að útbúa gómsæta fiskrétti. Pompeii eyðilagðist ásamt fleiri bæjum og borgum í kröftugu eldgosi úr eldfjallinu Vesúvíusi 24. ágúst árið 79 eftir Krist.
Sorrento – Draumastaður við Amalfi-ströndina
Sorrento, sem liggur við strandirnar á suðvesturhluta Ítalíu, er dásamlegur áfangastaður á hinni fögru Amalfi-strandlengju. Þessi heillandi bær er staðsettur í hlíðum þar sem finna má heillandi landslag og fegurð Miðjarðarhafsins, Sorrento er í raun fullkominn staður fyrir þá sem vilja blanda saman náttúrufegurð, iðandi menningu og afslöppun.
Sorrento er með einstakt útsýni yfir Napólí-flóa og Vesúvíus-eldfjallið. Í bænum eru einnig sögulegar byggingar frá tímum Rómverja og fallegar gamlar kirkjur. Í Sorrento má finna notalegar verslunargötur, góðar gönguleiðir og úrval góðra veitingastaða og kaffihúsa.
Capri – Þar sem rómantíkin svífur yfir vötnum
Capri, hin heillandi eyja á Napólí-flóa, hefur lengi verið talin einn af glæsilegustu áfangastöðum Ítalíu. Þessi litla eyja er þekkt fyrir náttúrufegurð, fallegt útsýni, glæsilegar villur og dásamlegar hvítar strendur. Capri hefur verið vinsæl meðal ferðamanna og frægðarfólks frá tíma rómverska keisarans Tiberíusar.
Eyjan er þekkt fyrir einstakt umhverfi, sem einkennist af bröttum klettum með iðagrænum trjágróðri og litríkum blómum.
Bærinn Capri er sjarmerandi með þröngum steingötum, handverksverslunum og úrvali veitingastaða þar sem hægt er að smakka ýmis konar ítalskan mat og drykki.
Capri er einnig full af sögu og menningu, þar sem þú getur skoðað rómverskar villur, eins og villu Tiberíusar, og ímyndað þér hvernig rómverskir keisarar á sínum tíma upplifðu þessa paradís. Lúxusyfirbragð eyjarinnar og óviðjafnanlegt landslagið gerir Capri að ævintýri fyrir alla sem heimsækja hana.
Miðvikudagurinn 1. október
Fimmtudagurinn 2. október
Föstudagurinn 3. október
Laugardagurinn 4. október
Sunnudagurinn 5. október
Mánudagurinnn 6. október
Athugið að tækifærin til að syngja eru mörg og erum við boðin og búin við að finna réttu staðina.
Í Róm verður gist á 4* hótelinu Hotel Pineta Palace með morgunverði.
Hótelið er vinalegt og staðsett í rólegu íbúðarhverfi í vesturhluta borgarinnar en frá hótelinu er auðvelt að taka neðanjarðarlest í miðborgina og hægt að kaupa miða í lestina í gestamóttöku.
Á hótelinu eru hugguleg herbergi, sem eru búin helstu þægindum, með þráðlausu gjaldfrjálsu neti, loftkælingu, öryggishólfi, minibar, sjónvarpi, baðvörum og hárblásara.
Maturinn á gististaðnum er fjölbreyttur og þar geta allir fundið eitthvað gómsætt til að kitla bragðlaukana, sem hinir ítölsku kokkar sjá um að matreiða fyrir mannskapinn. Ríkulegt morgunverðarhlaðborð en einnig er hægt að borða á veitingastað hótelsins að loknum viðburðaríkum dögum í Róm. Á verönd hótelsins er barsvæði, sem býður upp á ljúffenga kokteila og léttmeti.
Í Sorrento verður gist á 4* hótelinu Hotel Panorama Palace með morgunverði.
Hótelið stendur á fallegri útsýnishæð í Sorrento, en hótelið er staðsett í um 5 mínútna fjarlægð frá ströndinni, Meta di Sorrento og í um 5 km fjarlægð frá gamla miðbænum.
Á hótelinu eru snyrtileg herbergi, sem eru búin helstu þægindum, með þráðlausu gjaldfrjálsu neti, loftkælingu, öryggishólfi, minibar, sjónvarpi og hárblásara.
Á hótelinu er að finna þrjá huggulega innréttaða matsali, þar sem hægt er að borða bæði hádegis- og kvöldverð sem einkennist af ferskum fiskréttum og matreiðslu heimamanna. Þá er barsvæðið bjart og fallegt, með fallegu útsýni til sjávar.
Hótelið býður einnig upp á lítinn sundlaugargarð, þar sem tilvalið er að njóta sólar og slökunar.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða.
Í hringferð Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðirnar. Rún og Trausti hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld og eru viskubrunnar um sögu og menningu Ítalíu, þar sem þau störfuðu sem fararstjórar til margra ára.
Rún og Trausti munu sjá til þess að farþegar upplifi og njóti sín til fulls í þessari draumaferð um Suður-Ítalíu, þar sem fræðsla og umfram allt skemmtileg upplifun verður í fyrirrúmi.
Flug
Sigling
Farangur
Hótel
Fæði
Akstur
Skoðunarferðir
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ
Athugið að listinn er ekki tæmandi og aðeins til viðmiðunar.