Tíu þúsund fet bjóða nú upp á flotta æfingaferð í knattspyrnu til La Caleta á hinu sólríka og vinsæla strandsvæði Costa Adeje á Tenerife. Handan við hið glæsilega 5* hótel, þar sem auðvelt er að hvíla eftir góðar fótboltaæfingar, er að finna toppæfingaaðstæður þar sem mörg af stærstu félagsliðum heims hafa vanið komið sínar, frábær fótboltavöllur og fyrirmyndar líkamsræktarsalur.
Tíu þúsund fet kynna æfingaferð til Tenerife fyrir karla- og kvennalið í knattspyrnu. Ferðin hentar vel til þess að æfa við toppaðstæður og hrista hópinn vel saman. Miðað er við beint flug frá Keflavíkurflugvelli.
Dvalið er í huggulegum strandbæ á suðurhluta eyjarinnar fögru þar sem finna má allt til alls fyrir sólþyrsta ferðalanga. Æfingaaðstaðan er til fyrirmyndar, jafnt á góðum knattspyrnuvelli sem og í flottri líkamsræktarstöð sem hvoru tveggja má finna í göngufjarlægð frá gististaðnum.
Hér er frábært tækifæri til að æfa við bestu aðstæður og njóta óþrjótandi afþreyingarmöguleika á sólríkum slóðum. Þú finnur ekki betri leið til að hrista hópinn saman og æfa liðið fyrir komandi keppnir á Íslandi.
Tenerife er stærsta og fjölsóttasta eyjan af þeim átta eyjum sem tilheyra Kanaríeyjunum. Hún er staðsett mitt á milli eyjanna Gran Canaria, La Gomera og La Palma. Tenerife er eldfjallaeyja sem talin er að hafi myndast fyrir 8 milljónum ára. Hún er í u.þ.b. 300 km fjarlægð frá meginlandi Afríku og í u.þ.b. 1300 km frá meginlandi Spánar. Eyjan er 2.034 ferkílómetrar að flatarmáli og er eins og þríhyrningur í laginu og fer hún hækkandi eftir því sem nær dregur miðju og nær hámarki með Pico del Teide sem er hæsta fjall Spánar í 3.718 m hæð yfir sjávarmáli. Santa Cruz er höfuðborgin þar sem búa um 250.000 íbúar en á eyjunni búa tæplega milljón manns.
Meðalhiti á Tenerife er í kringum 22-25 °C en athugið að hitastigið getur verið lægra upp til fjalla.
Á Tenerife er veðrið einfaldlega gott allan ársins hring. Meðalhiti er um 20-22 gráður, á svalari dögum fer hitinn vart undir 15 gráður en sjaldan yfir 30 gráður í sumarhitum. Árstíðirnar koma og fara án þess að nokkur maður taki eftir því. Á suðurhluta Tenerife er eitthvert stöðugasta og besta loftslag á jörðinni – sól og blíða allan ársins hring.
Fjölbreytt afþreying er í boði á daginn fyrir alla aldurshópa, ekki síst fyrir unga fólkið. Stærsta go-kart braut í Evrópu er á eyjunni ásamt einum allra glæsilegasta vatnsrennibrautagarði heims, Siam Park. Á strandsvæðinu er hægt að finna ýmsa afþreyingu; s.s. sjóskíði, bananabáta, siglingar og köfun. Göngugöturnar eru fullar af fallegum verslunum og þá má einnig finna fjölda verslunarkjarna á suðurströndinni, t.d. Parque Santiago 6, Siam Mall, X Sur, El Duque og Safari. Þar má einnig finna stórmarkaði, veitingastaði og útimarkaði sem haldnir eru reglulega á svæðinu.
Hér eru veitingastaðir sem bjóða fjölbreyttan mat, t.d. kínverskan, indverskan og að sjálfsögðu spænskan. Þá er hér að finna fjölskrúðugt næturlíf með mörgum börum og dansstöðum.
Fimmtudagurinn
Ferðadagur (Flug kl. 09:10)
Föstudagurinn
Æfingar & þjálfun.
Laugardagurinn
Æfingar & þjálfun.
Sunnudagurinn
Æfingar & þjálfun.
Mánudagurinn
Æfingar & þjálfun.
Þriðjudagurinn
Æfingar & þjálfun.
Miðvikudagurinn
Æfingar & þjálfun.
Fimmtudagurinn
Ferðadagur (Flug kl. 15:50)
Gist er á 5* glæsihótelinu Suite Villa María með fullu fæði og drykkjum með kvöldmat innifalið.
Gististaðurinn er velstaðsett og glæsilegt 5 stjörnu hótel í La Caleta, á Costa Adeje strandsvæðinu. Æfingasvæðið er að finna hinum megin við götuna og er því örstutt að ganga á æfingar sem er mikill kostur.
Við bjóðum ykkur upp á glæsilegar 135 fm2 villur með þremur svefnherbergjum og einkasundlaug hver og ein þeirra. Í hverri villu er að finna 3 rúmgóð svefnherbergi fyrir allt að 6 manns. Villurnar eru staðsettar á rólegu svæði hótelsins með útsýni yfir golfvöllinn og hafið.
Sameignarsvæði hótelsins er fallegt og innréttað í notalegum stíl. Veitingastaður og hótelbar eru með snyrtilegasta móti. Móttakan er opin allan sólarhringinn.
Á hótelinu er glæsilegt og huggulegt sundlaugarsvæði þar sem gestir fá úrvals aðstöðu til þæginda, hvíldar og sólbaða.
Hótelið býður upp á gjaldfrjálsa Wi-Fi tengingu en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða. Athugið einnig að gististaðir geta breyst en þá er ávallt boðið upp á sambærilega gististaði eða betri.
Flug:
Farangur:
Hótel:
Fæði:
Æfingar
Akstur
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ